Fjóla Björk Karlsdóttir

Mrs. Fjóla Björk Karlsdóttir

orcid

Research Focus & Metrics

Academic Career Length

5Years (2022-Present)

(Calculated once Scilit publication data is synced: current year − year of first publication + 1)

Representative Publications

View All Publications
HSHjordis Sigursteinsdottir
Hjordis Sigursteinsdottir
FKFjóla Björk Karlsdóttir
Fjóla Björk Karlsdóttir
This study aims to examine social support at work amongst the employees of Icelandic municipalities and its relationship to job satisfaction, bullying and harassment. The study is based on an online survey conducted in 2021. A total of 4973 employees answered the questionnaire in part or in full after three reminders (57% response rate). The majority of the participants in the study were women (82%), but this gender ratio was representative of the population. The results show that social support gave an average score of 4.2 on a scale of 1–5; 87% of the participants were rather often or always satisfied with their job, 8% had experienced bullying at work, 2% had experienced sexual harassment and 3% had experienced gender-based harassment. Social support has a positive, moderately strong correlation with employee job satisfaction and a weak negative correlation with bullying at work. Based on the results, social support is an important factor related to the job satisfaction of employees and is a protective factor against bullying and sexual harassment at work. This finding demonstrates that managers and those responsible for employee well-being in the workplace should focus on social support at work, especially now that the psychosocial work environment is fragile because of COVID-19.

12 August 2024 in Netla
Verified
Journal Article
Open access
PDF file
GEGuðmundur Engilbertsson
Guðmundur Engilbertsson
FKFjóla Björk Karlsdóttir
Fjóla Björk Karlsdóttir
Lög um grunnskóla frá 2008 og lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna frá 2021 ásamt reglugerðum um sérþarfir í grunnskóla og skólaþjónustu sveitarfélaga ramma inn stefnu um skóla án aðgreiningar og áherslu á að mæta sem best þörfum nemenda í skólastarfi með markvissum stuðningi. Í greininni er fjallað um niðurstöður viðtala við starfandi læsisfræðinga þar sem reynt var að fá innsýn í skipulag við lestrarnám nemenda sem þurfa á auknum stuðningi að halda í skólum sem búa að góðri fagþekkingu í lestrarfræðum. Hugað var sérstaklega að stefnumörkun og aðgerðaáætlunum er varða kennslu, hvernig mati væri háttað, hvers kyns matstæki væru notuð og hvernig stuðningi við nemendur og eftirfylgni í tengslum við hann væri hagað. Horft var til mögulegra veikleika á framkvæmd og leitast við að skilja ábyrgð mismunandi aðila á henni og hversu skýr hún væri. Rannsóknarspurningin var: hver eru helstu álitamál er varða skipulag og eftirfylgni með lestrarstuðningi á yngsta stigi grunnskóla séð með augum læsisfræðinga? Helstu niðurstöður voru þær að reglulega er skimað á fyrstu árum í grunnskóla en ítarleg greining á lestrarvanda á sér ekki stað fyrr en í þriðja bekk. Prófið sem notað er til greiningar er á vegum einkaaðila og gagnrýnt er að opinberir aðilar bjóði ekki upp á slík próf, uppfæri reglulega og veiti kennurum leiðsögn um notkun þeirra. Skýr stefna um lestrarkennslu var ekki alltaf til staðar, aðgerðaáætlun fylgdi stundum ekki stefnu, skriflegt ferli um stuðning í ljósi mats á lestrarstöðu nemenda lá ekki alltaf fyrir, utanumhald með stuðningi var stundum óljóst og ekki var nægilega skýrt hver bar ábyrgð á framvindunni eða eftirfylgni með henni. Draga má þann lærdóm af niðurstöðunum að margt í ferlinu virtist háð tilviljunum frekar en skráðum verkferlum og finna má efasemdir um að staðið væri nægilega vel að stuðningi í lestri þótt skólarnir byggju vel að faglegri þekkingu í lestrarfræðum.