Jórunn Elídóttir

Jórunn Elídóttir

Auto-generated profile, based on publicly available information

Jórunn Elídóttir

Háskólinn á Akureyri - Hug- og félagsvísindasvið

Research Focus & Metrics

Academic Career Length

14Years (2013-Present)

(Calculated once Scilit publication data is synced: current year − year of first publication + 1)

Representative Publications

View All Publications
7 January 2022 in Tímarit um uppeldi og menntun
Verified
Journal Article
Open access
PDF file
BSBirna María Svanbjörnsdóttir
Birna María Svanbjörnsdóttir
SSSigríður Margrét Sigurðardóttir
Sigríður Margrét Sigurðardóttir
TÞTrausti Þorsteinsson
Trausti Þorsteinsson
HGHermína Gunnþórsdóttir
Hermína Gunnþórsdóttir
JEJórunn Elídóttir
Jórunn Elídóttir
Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig skólaþjónusta sveitarfélaga stæði að því að tryggja kennurum og skólastjórnendum stuðning til starfsþróunar og að efla skóla sem faglegar stofnanir, sem þeim ber samkvæmt lögum. Rafræn spurningakönnun var lögð fyrir skólastjóra leik- og grunnskóla og þá sem voru í forsvari fyrir skólaþjónustu í sveitarfélögum á Íslandi. Til að fylgja spurningakönnuninni eftir voru valin fimm tilvik og þau rannsökuð sérstaklega. Niðurstöður benda til þess að ekki sé jafnvægi milli meginviðfangsefna skólaþjónustunnar, sem eru að styðja nemendur og foreldra annars vegar og starfsþróun kennara, stjórnenda og annars starfsfólks hins vegar. Margt bendir til þess að skólaþjónustuna skorti skýrari stefnu um skólamiðaða ráðgjöf þar sem betur er skerpt á hlutverki hennar í því að efla og þróa skólana sem faglegar stofnanir og uppfylla þar með reglugerðarákvæði. Í því skyni þurfa yfirvöld og fræðslustjórar að hafa samráð um áherslur og leiðir og tryggja heildstæða þjónustu með áherslu á starfsþróun og skólamiðaða ráðgjöf fyrir starfsfólk skóla í samstarfi við kennara og skólastjórnendur.

5 July 2023 in Netla
Verified
Journal Article
Open access
PDF file
AHAnna Elísa Hreiðarsdóttir
Anna Elísa Hreiðarsdóttir
JEJórunn Elídóttir
Jórunn Elídóttir
Í mars 2020 voru gefnar út reglur á Íslandi þar sem settar voru skorður á samkomur, starfsemi í framhalds- og háskólum færðist á netið, rekstur leik- og grunnskóla var takmarkaður og stjórnvöld hvöttu foreldra til að hafa börnin heima ef þess var kostur. Rannsóknin sem hér er kynnt beinist að velferð ungra barna á tímum COVID-19 þegar flestu var skellt í lás í þjóðfélaginu og skólahald breyttist hjá börnum. Þátttakendur í rannsókninni voru tólf fjölskyldur leikskólabarna og voru tekin endurtekin viðtöl við þær á tímabilinu mars til maí 2020. Áherslan var á þau áhrif sem ástandið hafði almennt á börnin og fjölskyldurnar og áskoranirnar sem fylgdu í kjölfarið. Jafnframt var horft fram á við og dregið fram hvað hægt er að læra af reynslunni, bæði er snýr að velferð barna nú á dögum og til framtíðar litið. Niðurstöður sýna að faraldurinn hafði víðtæk og mikil áhrif á fjölskyldurnar. Fjölskyldulífið breyttist en foreldrar voru sammála um að rútína og skipulag hafi skipt miklu máli sem og að hafa nóg að gera fyrir börnin. Margir töldu að þessi tími hefði gefið þeim tækifæri til að kynnast börnunum betur og á margan hátt var gott að geta dregið úr ytra áreiti. Úrræði og samheldni fjölskyldna virtist draga úr álaginu og gerði upplifunina að sumu leyti jákvæða þegar litið var til baka. Þær ályktanir má draga að samfélagið hefði getað stutt betur við barnafjölskyldur á tímum samkomubanns, til dæmis með því að gefa þeim möguleika á að hafa einhvern til að tala við utan fjölskyldunnar

14 February 2019 in Reflective Practice
Verified
Journal Article
Closed access
JEJórunn Elídóttir
Jórunn Elídóttir
In this article the author reflects upon the place imagination has in education and argues that imagination for adults is an important part of the reflective practice. The article explores the importance of going beyond the traditional way of thinking to capture the essence of understanding teaching and learning practice. The goal of this self-study is to create a way of professional development as a teacher educator which the author could utilise with teacher students. To accomplish that, the author travels to the three (imaginary) lands of reflective practice, and applies this as a way of reflective learning. The author demonstrates how reflective practices can draw together a dialogue between the embodied experience and understandings based on imaginative meanings. The author argues that reflective practice could benefit from a perspective that focuses on imaginative thoughts and more creative discussion in all aspects of education. Furthermore, to enhance students’ reflective learning one must first and foremost be able to grasp the imaginative element within oneself in order to improve students’ learning through reflective practice.

6 January 2025 in Tímarit um uppeldi og menntun
Verified
Journal Article
Open access
PDF file
JEJórunn Elídóttir
Jórunn Elídóttir
SZSólveig Zophoníasdóttir
Sólveig Zophoníasdóttir
Á undanförnum misserum hefur verið töluverð umræða í háskólum um kosti og galla ChatGPT í námi. ChatGPT er öflugt gervigreindarverkfæri sem er byggt á risamállíkani og líkir eftir mannlegum texta. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á viðhorf kennaranema í Háskólanum á Akureyri til ChatGPT á haustmisseri 2023, tækifæri og áskoranir tengdar notkun verkfærisins í háskólanámi og hvernig þau sáu fyrir sér að nýta það í framtíðinni. Einnig var skoðað hvort viðhorf þeirra og notkun á ChatGPT breyttist yfir misserið. Gagna var aflað með spurningakönnun í tveimur námskeiðum í kennarafræði, bæði í upphafi og við lok misserisins, og gögnin þemagreind. Niðurstöður sýndu að nemendur voru meðvitaðir um tækifæri og áskoranir tengdar ChatGPT og lögðu áherslu á ábyrga notkun. Einnig mátti greina breytingu á viðhorfi nemenda í garð ChatGPT og þróun í notkun verkfærisins milli kannananna. Rannsóknin veitir upplýsingar um viðhorf til ChatGPT og notkun þess meðal kennaranema og undirstrikar mikilvægi samtals og samvinnu innan háskólasamfélagsins um notkun verkfærisins

11 February 2020 in Netla
Verified
Journal Article
Closed access
PDF file
JEJórunn Elídóttir
Jórunn Elídóttir
SZSólveig Zophoníasdóttir
Sólveig Zophoníasdóttir
Í þessari grein er fjallað um starfsþróunarverkefnið Hugleik – samræður til náms í leikskóla. Um er að ræða verkefni sem unnið var í samstarfi leikskólans Lundarsels á Akureyri, Miðstöðvar skólaþróunar og kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Megintilgangur verkefnisins var að starfsfólk leikskólans lærði um samræður og efldi leikni sína til að nota samræðuaðferðir með börnum í daglegu skólastarfi með það að markmiði að efla með börnum hæfni til að draga ályktanir, taka afstöðu og efla rökhugsun. Margvíslegar rannsóknir hafa farið fram á samræðum sem sýna að þær hvetja börn til að ígrunda og skerpa vitund þeirra um eigin hugsunaraðferðir. Samræðuaðferðir fela t.d. í sér að spyrja spurninga sem hvetja til ígrundunar í þeim tilgangi að efla með börnum gagnrýna hugsun og hæfni til að ræða saman. Verkefnið fellur vel að hæfniáherslum Aðalnámskrár leikskóla (2011) eins og þær birtast í almennum hluta þar sem lögð er áhersla á að skólar efli með börnum og ungu fólki hæfni til að afla gagna og upplýsinga og beita gagnrýninni hugsun við mótun og miðlun hugmynda á skapandi hátt. Í Aðalnámskrá leikskóla (2011) er m.a. lögð áhersla á að í leikskóla sé skapaður vettvangur þar sem allir taki virkan þátt í samræðum um almenn málefni, hlusti hver á annan, skiptist á skoðunum og taki þátt í heimspekilegum samræðum. Starfsþróunarverkefnið náði yfir tveggja ára tímabil og voru alls haldnar 8 samræðusmiðjur, auk þess sem starfsfólk leikskólans skráði niður valdar samræðustundir og tók þátt í rýnihópaviðtölum. Sagt verður frá hugmyndafræðilegum grunni verkefnisins, umfangi, inntaki, aðferðum og verkfærum. Auk þess verður greint frá niðurstöðum skráninga og rýnihópaviðtala. Niðurstöður gefa starfsfólki leikskóla tilefni til að ígrunda og endurskoða starfshætti með það að markmiði að efla samræður með börnum í skólastarfinu.

11 December 2025 in Tímarit um uppeldi og menntun
Verified
Journal Article
Open access
JEJórunn Elídóttir
Jórunn Elídóttir
SZSólveig Zophoníasdóttir
Sólveig Zophoníasdóttir
Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf og reynslu háskólakennara af notkun gervigreindarverkfærisins ChatGPT í kennslu og rannsóknum, með hliðsjón af TAMlíkaninu (e. Technology Acceptance Model). Megindleg og eigindleg gögn voru greind út frá svörum 23 kennara við spurningakönnun. Niðurstöðurnar benda til þess að flestir kennarar telji það gagnlegt að nota ChatGPT í kennslu og rannsóknum. Margir þeirra höfðu þó áhyggjur af ChatGPT-notkun nemenda, fræðilegum heilindum og áreiðanleika verkfærisins. Viðhorf kennaranna til ChatGPT mótast meðal annars af gagnsemi verkfærisins og einfaldleika í notkun þess, svo og stuðningi og fræðslu sem þeim býðst. Niðurstöðurnar benda til þess að mikilvægt sé að háskólasamfélagið þrói stefnu um notkun gervigreindarverkfæra og efli gervigreindarlæsi (e. artificial intelligence literacy/AI-literacy) til að stuðla að ábyrgri og skapandi notkun þeirra. Jafnframt er mikilvægt að veita kennurum og nemendum stuðning til að nota tæknina á ábyrgan og árangursríkan hátt.